Showing posts with label Freybjörn. Show all posts
Showing posts with label Freybjörn. Show all posts

Tuesday, November 30, 2010

– Brotið –



Eins og ég sagði ykkur um daginn þá lentum við Freybjörn í „árekstri“ fyrir nokkru. Ég var samt ekki viss um að hann hafi áttað sig á því strax því næst þegar hann náði í mig lét hann sem ekkert væri. 

Ég var nokkuð spennt að fá hann, enda aldrei komist fram hjá jafnstórri hindrun í sambandi áður. Ég fékk fiðrildi í magann þegar hann gekk inn til mín.
            „Hæ!“ sagði ég og brosti út að eyrum.
            „Sko, ég vissi að þú myndir bara skella á mig ef ég kæmi ekki í eigin persónu. Svo,“ hann hikaði, „ég fann þessa skemmtilegu síðu á netinu; fanneymango.blogspot.com. Atburðarásin þar svipar allmikið til ýmissa atburða sem gerst hafa milli okkar.“
            Hjartað mitt hamaðist meðan hinar og þessar lygar og afsakanir hringsnerust í kollinum á mér. Hann beið eftir svari en ég gat ekkert sagt. 
            „Einmitt það,“ sagði Freybjörn án þess að blikka. „Þú ætlar ekki að segja neitt, er það? Gætir kannski byrjað á Eric Northman. Eða blásturshljóðfærablætinu þínu. Því ég hef allt kvöld. Ég er bara með ofvaxna krakkann í eftirdragi aðra hverja helgi.“ Hann gekk fram hjá mér, settist í sófann, kveikti á sjónvarpinu og gæddi sér á snakki úr skál á stofuborðinu. Egill Helgason blaðraði um bækur. Ég fékk mig loks til að hreyfa mig, vissi að þetta væri búið, þurfti að gera gott úr þessu. Ég settist hjá honum og sagði frá öllu. Auðvitað hafði hann lesið þetta allt áður og ég hafði ekki mikið meira til málanna að leggja en hann virtist feginn að ég segði honum þetta sjálf – og ekki undir nafni Fanneyjar Mango.

„Ætlarðu – að blogga – oh – um þetta?“ stundi hann meðan hann þrýsti riddaranum sínum inn í mig ofan á stofuborðinu. Líkt og flest öll sambönd mín virtist það ætla að enda með break-up-sex. Mér leið samt illa. Ég hafði sært hann mikið, sofið hjá bróður hans og talað illa um dóttur hans. Hann tók ekki í mál að ég yrði ofan á. Mér leið eins og hann vildi leyfa mér að finna fyrir sársaukanum sem ég hafði valdið honum. Þetta var erfitt. Ég fann ekki ryþmann og hárið mitt var fullt af snakki. 
            „Ég veit ekki,“ svaraði ég, „viltu það? Ég vissi ekki hvort hann væri að spyrja er að mynda einhvers konar fantasíu. „Hvað sem þú vilt,“ stundi ég út úr mér og reyndi að kyssa hann. Hann færði sig frá. Hvort það var ómeðvitað eða meðvitað vissi ég ekki. Ég var komin aftur í þennan pakka – ástríðulaust kynlíf. Nei. Ég skyldi búa til ástríðuna sjálf:
            Ég tók um hnakka hans og togaði hann að mér svo varir mínar þrýstust upp að hálsinum. Ég saug og gældi með tungunni, stundi enn hærra og tók taktinn í mínar hendur svo við bókstaflega dönsuðum saman, lárétt ofan á stofuborðinu mínu sem brakaði í takt við okkur, eins og það væri að spila tónlist.
            „Ég á eftir að sakna þín,“ hvíslaði ég í eyra hans og hélt áfram að gæla við hálsinn með tungunni.
            „Er ég betri en Eric?“ spurði hann.
            „Sýnd þú mér.“
            Hann kyssti mig. Loksins. Fiðrildin í maganum byrjuðu aftur að flögra og ég fann hlýjan straum færast niður mænuna. Já, hann var betri en Eric. Hann var sá besti. Hann hraðaði á taktinum og þreifaði á öllum líkama mínum líkt og hann væri að leggja hann á minnið eða snerta hann allan áður en hámarkinu yrði náð. Ég strauk honum eins mjúklega og ég gat niður bakið þar til ég endaði við stælta rassvöðvana. Ég kleip hann og kreisti í takt við dansinn. Ég fann skökul hans verða grjótharðan inni í mér og vissi að aðeins nokkrar sekúndur væru í fullnægingu hans. Ég stundi eins hátt og ég gat svo hann gerði sér grein fyrir því hvað mér þætti þetta gott. Svo hann vissi að ég vildi ekki sleppa honum. Hann stundi á móti, tók um axlir mínar og ýtti sér að öllu afli inn í mér. Borðið söng sinn síðasta tón áður en það gaf undan og við duttum með borðplötunni niður á gólf. Ég fann hvernig fullnægingin heltók mig á sama tíma og lungun féllu saman. Ég náði ekki andanum. Það var óþægilegt en spennandi. Í lokakippi fullnægjunnar þandist brjóstkassinn út og mér leið eins og ég hefði endurfæðst, væri að draga andann í fyrsta skiptið.
            „Fanney, er allt í lagi með þig?“ spurði Freybjörn.
            „Já, bara pínu erfitt að anda.“
            Hann stóð upp eins og skot. Limur hans benti út í loftið. „Vá, fyrirgefðu. Ég hef aldrei lent í þessu!“
            „Ekkert mál.“ Ég vildi ekkert fara að segja honum hversu mörg svipuð atvik hefðu hent mig.
      
Ég trúi ekki að þetta hafi verið síðasta skiptið mitt með Freybirni. En nú er þetta stutta litla ævintýri búið. Bloggið eyðilagði fyrir mér besta samband mitt hingað til. 

Saturday, November 20, 2010

– Sif –



Vikan var að mestu leyti góð. Lífið gekk eins og í sögu. Ég og Freybjörn vorum eiginlega orðin föst og Eric var næstum alveg horfin úr huga mínum. Ég og Freybjörn hittumst á hverjum degi eins og bálskotnir unglingar og sendum hvort öðru sms þegar við vorum ekki saman. Þar til ég mætti honum við Lækjartorg. Hann var ekki einn á ferð. Hjartað mitt datt niður í maga og ég óskaði þess innilega að þarna væri hann á ferð með systur sinni. Ég fann kökk myndast í hálsinum og kuldahrollur lék um líkama minn. Þetta var ekki systir hans. Um leið og hann sá mig roðnaði hann og kyngdi, að því er virtist, kekki á stærð við tennisbolta. Hann átti dóttur. Stelpan var í bleikri úlpu, með bakpoka merktum Sif Freybjörnsdóttir og hélt á poka af brauði, greinilega á leiðinni að gefa öndunum.
            „Hæ, Fanney,“ sagði Freybjörn að fyrra bragði.
            Ég gat ekki heilsað á móti, hafði enn ekki náð að kyngja mínum eigin kekki.
            „Fanney, þetta er dóttir mín Sif.“
            Ég og Sif störðum hvor á aðra án þess að segja orð. Hún var einmitt á þessum aldri sem ég hata. Börn í miðjum vaxtakipp og vita ekkert hvað þau eru stór. Hendurnar í vitlausum hlutföllum miðað við höfuðið og fótleggirnir kannski svipað stórir og upphandleggirnir. Hún var krakki. Ég hata krakka. Smábörn eru alveg fín, svo lengi sem þau eru ekki nálægt manni í flugvélum og svoleiðis. En krakkar eru aðeins til ama, vita ekki neitt en þykjast vita allt. Alltaf í einhvers konar leynifélögum að njósna um aðra og gera dyrabjölluat. Ef ég fengi að ráða myndu barnaskólar vera betur að girtir en Litla Hraun.
            „Við erum að fara gefa öndunum brauð,“ sagði Freybjörn til að fylla upp í þá óþægilegu þögn sem ríkti.
            „En ekki mávunum,“ sagði Sif litla, „af því að þeir eiga heima hjá sjónum.“
            „Mikið rétt,“ sagði Freybjörn og lagði hendina sína á höfuð hennar.
            Allt í einu fór um mig annar skelfilegur hrollur.
            „Er ekki allt í lagi?“ spurði Freybjörn. „Er þér kalt?“ Hann byrjaði á að hneppa frá frakkanum sínum. Þvílíkur herramaður. En ég gat ekkert sagt enn og gerði það eina sem mér datt í hug að gera: Ég hljóp burt.

Monday, November 15, 2010

– Opnuð –



Nóttin með Freybirni, Blásturshljóðfæraleikaranum, var dásamleg sem fyrr. 
            Hann er gjafmildur í rúminu. Og það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir hann vegna þess hve reið ég var. Ég hélt við myndum stunda útrásarkynlíf. Það gerðum við reyndar til að byrja með en í lokin var allt annað andrúmsloft. Við héldumst í hendur, hann kom fingrum sínum milli minna eins og við værum ástfangið par. Hann strauk mér í sífellu þegar hann hélt ekki í hönd mína og gaf mér mjúkustu kossa veraldarinnar. Ég var svo óvön því að ég vissi ekki hvernig ég ætti að hegða mér. Hann tók eftir óörygginu. Það var eftir að við höfðum þegar fengið það einu sinni á la moi.
            „Þetta er í þriðja skiptið sem við endum saman,“ sagði hann. „Er þér enn ekki farið að líða þægilega með mér?“
            Þessi spurning kom mér í opna skjöldu. Mér leið ekki þægilega með honum, ekkert frekar en öðrum. En ég ákvað samt að ljúga. „Jú.“
            Hann sá í gegn um mig, faðmaði mig að sér og hélt áfram að strjúka mér. Svo opnaði hann mig. Ég áttaði mig ekki á því strax en fékk mig til að segja sér hluti um sjálfa mig sem ég hef engum öðrum sagt. Mig langaði meira að segja til að játa fyrir honum að ég hefði sofið hjá bróður hans en náði að halda aftur að mér. Ég sagði honum frá því hversu mikið ég sæi eftir því að hafa ekki leyft túrtappanum að afmeyja mig eins og aðrar stelpur og hversu þungt seinni kynferðisafbrot afmeyjara míns lögðust á mig. Ég sagði honum frá hversu mörgum ég hafði sofið hjá (en dró frá alla vinnutengda drætti). Hann sagði mér sína tölu sem var sjö sinnum lægri en mín. Hann kippti sér samt ekkert upp við það. Við slóum líka á léttari strengi og hlógum að litlu tískuviti mínu og miklu tískuviti hans. Allt í einu rankaði ég við mér og var í miðjum klíðum við að segja honum mínar myrkustu fantasíur og erótískustu drauma. Þá áttaði ég mig á hvað hann hefði verið að gera. Þegar maður á í erfileikum með að ná lokinu af krukku er best að hita hana og stinga einhverju inn á milli glersins og loksins. Ég hef auðvitað margoft verið hituð og penetreituð eins og krukka, en Freybjörn var sá eini sem sneri lokinu og tók það af. Mér var farið að líða þægilega með honum. Hann strauk mér upp og niður bakið meðan ég talaði og talaði. 
            „Segðu mér meira,“ sagði Freybjörn og átti við lesbískan draum sem mig hafði dreymt fyrir stuttu. Hann strauk mér af enn meiri ákveðni. Hann var farinn að gæla við mig gegn um nærbuxurnar.
            „Ég strauk á henni brjóstin,“ sagði ég og hann strauk á mér brjóstin. „Og færði hana úr nærbuxunum með tönnunum.“ Hann gerði slíkt hið sama. Ég fann andardráttinn hans leika um blíðuna mína. „Og svo,“ ég átti erfitt með að tala, of spennt fyrir vörum hans, „og svo, sleikti ég hana. Alla.“ Freybjörn sökkti sér niður á mig. Tunga hans var sem óð milli þess að blautar varir hans strukust blíðlega upp við snípinn. Hann saug. Ég fann fullnæginuna nálgast á nær ólöglegum hraða og ríða yfir mig af svo miklum krafti að ég hafði aldrei upplifað annað eins. Lærin mín læstu sér um höfuð Freybjörns. Hann saug fastar. Fullnægingin hélt áfram. Mér leið betur en mér hafði nokkurn tímann liðið áður. Þetta var eins og fyrsta fullnægingin, allt hitt var bara einhvert skammtímagotterí. Hún helltist yfir mig aftur, vellíðunartilfinningin, og ég fékk aðra fullnægingu. Ég sá stjörnur dansa í kring um mig og kitla hvern einasta sentímetra holds míns. Ég fann endorfínið renna niður líkamann í undursamlegum kippum.
            Freybjörn klifraði upp til mín og tók mig í fang sitt. Ég sofnaði fullnægðari en nokkru sinni fyrr.


Wednesday, October 20, 2010

– Rúmævintýri Iceland Airwaves 2010 –



Já Rúmævintýri Airwaves voru nokkuð skemmtileg þetta árið – en misskemmtileg. Þau áttu sér reyndar ekki alltaf stað í rúminu, en ævintýri voru þau engu að síður.

Miðvikudagur: Blásturshljóðfæraleikarinn
Ég hélt að það yrði ekkert úr rúmævintýrum þetta kvöldið en allt í einu rakst ég á þennan yndæla blásturshljóðfæraleikara fyrir framan Bakkus seint um kvöldið. Ekki var mikil drykkja í gangi (miðað við hin kvöldin) en hann virtist vel í glasi. Eða kannski var hann bara svona vandræðalega edrú: reyndi eins og hann gat að koma mér heim til sín með asnalegum pick-up línum sem hann virtist hafa beinþýtt úr ensku. Ég man að á tímabili var hann að tala um hana og hænur (wtf?). Venjulega hefði ég ekki farið heim með honum en þar sem markmið mitt var einn á dag yfir Airwaves varð hann heppinn þar. Við fórum heim til hans og stunduðum svo-sem-allt-í-lagi kynlíf. Ég prófaði stellingu miðvikudagsins og gef henni tvær og hálfa stjörnu. Kannski gef ég honum bara tvær og hálfa stjörnu?  
            Ég læddist út um morguninn og skyldi eftir lítinn þakkarmiða með símanúmeri. Mér finnst svo dónalegt að kveðja ekki – held að það sé uppeldið.

Fimmtudagur: Englendingurinn
Nældi mér í einn útlenskan og fékk að gista á dásamlegu hóteli. Ókei, það var ekkert svo dásamlegt, frekar kaldhæðnislegt nafn á því: Room with a View. Út um gluggann var afbragðs útsýni yfir róna að pissa á staur við Ölstofuna.
            Englendingurinn minn bauð mér heim áður en tónleikar kvöldsins kláruðust. Ég bjóst við að hann væri spenntur yfir því að sænga hjá íslenskri stelpu. Ég var líka spennt. Ég hef samt sofið hjá Englendingi áður, eitt sinn þegar ég fór til London. Hann var nokkuð öðruvísi en ég ætti að venjast, breskur red-neck. Þessi var þó ekki eins og sá fyrri. Hann var með svart liðað hár, ágætis líkama og þegar ég vaknaði morguninn eftir komst ég að því að hann var í hljómsveit. Eða kannski voru herbergisfélagar hans í hljómsveit? Já, herbergisfélagar! Það gæti verið önnur ástæða þess að hann vildi fara svona snemma af tónleikunum; einhver labbaði beint inn á okkur. Það þurfti einmitt að vera á sama tíma og við vorum í föstudagsstellingunni. Hana hafði ég aldrei prófað áður, enda var hún nokkuð erfið. Ég hvet konur ekki til að prófa hana nema að þær treysti sér í hana. Ég æfi jóga einu sinni í viku og var samt næstum því dottin úr lið.
            Sirka þrír Englendingar sáu mig nakta þetta kvöld, að mínum Englendingi frátöldum. Við rákum vini hans út auðvitað. Þeir hafa ekki farið langt því tvisvar sinnum var bankað á herbergishurðina. Enginn kom inn, sem betur fer því ég var ekki búin að hylja mig – ekki það að vinir hans hefðu séð eitthvað nýtt.

Föstudagur: Allt annar maður
Ekkert virtist ganga að óskum. Ég hafði hugsað mér að ná mér í íslenskan tónlistarmann og reyndi hvað ég gat að spotta úr hina og þessa. En allir sem ég kom auga á virtust eiga kærustu. Ég fór meira að segja að pæla í nokkrum óaðlaðandi tónlistarmönnum en ekkert gekk. Allir voru í sleik nema ég! Þá rakst ég á blásturshljóðfæraleikarann minn aftur. Ég komst að því að hann hafi ekki verið svo fullur síðasta miðvikudag. Nú var hann það og var mun afslappaðri. Kannski hann hafi verið búinn að reykja eitthvað? Hann var eins og nýr maður.
            Í þetta skiptið létum við nægja að fara inn á lokað baðherbergi og stunda munnmök. GUÐ MINN GÓÐUR hvað blásturshljóðfæraleikarar eru góðir í munnmökum! Varirnar voru þrútnar eins og þeir séu alltaf með varasalvann sem þrýstir blóðinu út í varirnar – margar kynlífsvöruverslanir selja hann og mæla einkar með honum fyrir munnmök. – Tunga hans var einnig ofboðslega lipur, ekki veit ég hvort það hafi eitthvað að gera með hljóðfærið hans en það var ofboðslega gott hvernig hann lét tungubroddinn leika við snípinn. Og hvernig hann saug með þessum þrútnu vörum. Ég held ég hafi fengið fullnægingu á innan við mínútu. Virkilega magnþrungna fullnægingu. Mér leið pínulítið eins og ég hafi aldrei áður fengið fullnægingu. Ég titraði svo mikið að ég átti í mestu erfiðleikum með að launa honum greiðann. En hann fær fimm stjörnur fyrir þetta þrátt fyrir að hafa ekki einu sinni þurft að nota liminn.
            Ef allir blásturshljóðfæraleikarar eru með svona varir hlýtur að vera fjör í lúðrasveitarbúðum. Ég hringi í hann, bókað mál. En ég vona að hann svari því ég held að ég hafi ekki náð eins góðum árangri.

Laugadagur: Puttarinn
Eftir alveg hreint frábæra tónleika með Robyn fór ég á Venue þar sem eitthvert ógeðið sannfærði mig um að koma með honum inn á klósett. Hann var skítugur og – ég veit ekki hvað ég var að hugsa. Ég leyfði honum að putta mig en ekki mikið meira en það. Ætla að leyfa Húð og kyn að taka burtu ógeðistilfinninguna.

Sunnudagur: :(
Var enn með of mikinn hroll frá laugardagskvöldinu til að tæla einhvern. Fékk samt fiðring í magann á Stórsveit Samma og Orphic Oxtra, svona margir blásturshljóðfæraleikarar... mmmmm...