Sunday, October 24, 2010

– Sannleikurinn –



Ég vil þakka ykkur, kæru lesendur, fyrir þann áhuga sem þið hafið sýnt mér. Hvort sem þið hneykslist, hlægið eða fræðist þá er ég mjög ánægð með að þið hafið áhuga á að lesa um líf mitt. Ég er sérstaklega ánægð með að heyra að sumir hafa sýnt mér kynferðislegan áhuga og þakka innilega þann einkapóst sem ég hef fengið. En því miður verð ég að neita öllum þeim sem vilja hitta mig, í kynferðislegum skilningi eða öðrum. Því ég verð því miður að halda nafnleynd bloggsins, orðspor eru hér að veði, en með nafnleyndinni fylgir einnig andlitsleynd. Ég get ekki hætt á það að nafn eða andlit mitt verði tengd við þetta blogg. Hér er ég Fanney. Og ég get lofað ykkur sem teljið ykkur vita hver ég: þið vitið það ekki. Enginn veit það, ekki einu sinni mínar nánustu vinkonur, svo mikið hagræði ég sannleikanum.