Thursday, October 28, 2010

– Hvað er að frétta? –



Ég hef misgóðar fréttir að færa. Sumar eru æðislegar, en aðrar ekki alveg jafn æðislegar:

Góðar fréttir:
1. Ég er í góðu líkamlegu ástandi samkvæmt læknunum á Húð & kyn. Það þýðir að ég get prófað nýju stellingu dagsins innan skamms.
3. Ég fékk gefins litun og klippingu og er orðin rauðhærð. Spurning um að vera Jessica Rabbit á Hrekkjavökunni?
4. Blásturshljóðfæraleikarinn hringdi og sagðist vilja hitta mig um helgina. Þið getið lesið um hann hér: Rúmævintýri Iceland Airwaves 2010
5. Ég á skemmtilega aðdáendur!
Slæmar fréttir:
1. Stundum á ég of skemmtilega aðdáendur.
2. Ég neitaði að fylgja fáránlega ríkum útlendingi.