Saturday, October 2, 2010

– Tott –


Af hverju finnast körlum svona gott að láta totta sig? Allir vita að blíða mjúkra kossa getur kitlað innstu hjartans rætur (ekki endilega í kynferðislegum skilningi) og er þá ekki um að gera að þekja liminn þessum kossum? Á hann ekki jafnblíða ást skilið og varirnar?
Blíðir kossar, blaut og lipur tunga og heitur munnur utan um uppsprettu ánægju hans: Þessi blanda á svo auðvelt með að æsa hann að ekki verður aftur snúið fyrr en fullnægingin hefur komið. Tilfinningin er allt öðruvísi en þegar hendur, leggöng eða endaþarmur verður fyrir valinu, fullnægingin verður öflugri, eflaust vegna þess að æsingurinn verður meiri. Hann verður mjög æstur við að horfa á elskanda sinn totta sig og er sá þáttur leiksins nær jafnmikilvægur og tottið sjálft. Sjónarhorn hans er mjög gott þegar elskandinn liggur með höfuðið í klofi hans og hann sér athöfnina betur en í góðri klámmynd. Sumir menn túlka tott sem dýrkun elskandans á þeim og því er elskandinn ekki aðeins að leika við lim þeirra heldur líka egóið.
Það sem mér finnst best við munnmök er að þau er hægt að framkvæma hvar sem er og hvenær sem er. Aldrei þarf að vinna að neinu; bíða eftir að konan verði blaut eða finna til getnaðarvarnir (svo lengi sem hvorugur aðilinn er með kynsjúkdóma). Svo er þetta líka svo skemmtilegt fyrir báða aðila!

Hvernig á að totta

Láttu honum líða vel. Byrjaðu á því að strjúka með höndunum og láta honum líða vel með sjálfan sig líkamlega og andlega og gefa honum færi á að koma fantasíunni af stað. Þú skalt taka utan um liminn og horfa á hann eins og þú sért að láta hann vita að þú viljir hann.
Þú þarft þó að passa þig á að stressa ekki elskuhuga þinn. Sumir menn eru óöruggir með sjálfa sig og finnst óþægilegt í fyrstu að einhver annar sjái, komi við og finni lyktina af kynfærum þeirra. Þá er gott að nota líkamstjáninguna til að láta hann sjá að ekkert sé að óttast. Notaðu dýrslegar tjáningaraðferðir, komdu við bringu hans og láttu eins og þú viljir ekkert meira en að stinga lim hans upp í þig og leika um hann með tungunni. Taktu utan um ytri lærin eins og þú sért að draga hann nær þér.
Ef þér finnst þú þurfa að segja eitthvað þá skaltu ekki minnast á óöryggi hans (ef það er til staðar). Þú getur sagt honum að slaka á og lýst því fyrir honum hvað þú ætlir að gera við hann. Þá yrði líka góður tími til að ræða hvort hann segi til þegar fullnægingin nálgast eða hvort þú viljir að hann fái það upp í þig. Það er svo undir þér komið að hvort þú ákveður að kyngja eða spýta.
Þá er komið að því að setja liminn upp í þig. Þú ræður sjálf/ur hversu langt hann fer inn, en hér á eftir er kennsla um deepthoating. Það er misjafnt hvað menn vilja. Sumir vilja helst láta tunguna leika um broddinn en sumir vilja fá hann allan inn (nær engum hefur fundist það óþægilegt). Athugið að afar afar fáir vilja að þú notir tennurnar!


Hvernig virkar deepthroating?

Deepthroating er ekki eins erfitt að læra og það virðist. Allavega ekki eins erfitt og það virðist á þessari mynd:



En eins og ég sagði þá er ekki erfitt að læra deepthroating en þó tekur það hálsinn svolítinn tíma að venjast því. Þú getur séð fyrir þér hvernig harður limur kemst alla leiðina inn með því að standa fyrir framan spegil með annan spegil í hendinni. Þar geturðu séð muninn á hliðarsvip þínum venjulegum og þegar þú opnar munninn og hallar höfðinu aftur. Sjáðu hvernig munnurinn býr til greiðan aðgang niður hálsinn.
Til að byrja með þarftu að nota gervilim til að æfa þig á. Ekki nota of stóran en passaðu þig á að hann sé langur svo þú hafir nógu gott grip. Ég mæli með limum með mjúkri gúmmíhúð. Þú skalt gæta þess að slaka mjög vel á og smyrja liminn vel og vandlega. En þú skalt ALDREI nota neitt matarkyns til að æfa deepthroating! Afleiðingar þess geta verið afar slæmar.
Æfingin tekur tíma því vöðvarnir í hálsinum þurfa að venjast þessari óvenjulegri notkun rétt eins og allir aðrir vöðvar líkamans. Þú þarft einnig að æfa öndun, þú getur ímyndað þér að það sé „þolið“ í þessari líkamsrækt.
Þegar þú setur gerviliminn upp í þig byrja munnvatnskirtlarnir að framleiða munnvatn. Þú átt eftir að vilja kyngja og það er allt í lagi. Sumum finnst það jafnvel slá á kúgunartilfinninguna og honum finnst það yfirleitt gott. Ef þú vilt láta liminn lengra ofan í þig skaltu kyngja reglulega en ef þú byrjar að kúgast of mikið skalt taka hann út og slaka á. Það er gott að kúgast mikið þegar þú æfir þig því þá lærirðu að þekkja hvenær kúgunartilfinningin kemur og með mikilli æfingu ættirðu að geta komið í veg fyrir hana. Góð æfing er að endurtaka þetta nokkrum sinnum; setja liminn upp í þig, kúgast, taka hann út og slaka á.
Þegar þú hefur náð góðum tökum á mjóum gervilimi skaltu skipta yfir í aðeins stærri.
Ef þú hefur æft þig mjög mikið en kúgast enn jafnmikið og fyrst gætir þú þurft að leita til læknis eða lyfjafræðings. Hann getur gefið þér saft til að deyfa hálsinn tímabundið. Saftið virkar samt ekki ef þú hefur ekki þjálfað vöðvana í hálsinum þínum til að taka á móti liminum.
Svo skaltu einbeita þér að tungunni. Lærðu að leika við liminn meðan þú deepthroatar en mundu að láta tunguna ekki fylgja honum niður hálsinn.
Ef þú æfir þetta nógu oft ætti deepthroating að verða sífellt auðveldara. Það er undir þér komið hvenær þú ert tilbúinn að Deepthroata alvöru limi en hafðu það í huga að enginn vill fá tott frá manneskju sem er alltaf að kúgast!